gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 

GEFUM MELTINGUNNI HVÍLD Á KVÖLDIN

Guðni talar um kosti þess að borða ekki eftir kl. 18
 
"Það tala sumir um að það sé hollt að borða ekki 3-4 tímum áður en maður leggst til hvílu. Höfuðáherslan er að gefa meltingarveginum tækifæri til að hvílast og búa til rými fyrir líkamann þannig að við getum unnið almennilega úr því sem við höfum innbyrgt. Líkaminn er orkuvél, við erum í stöðugri neyslu frá morgni til kvölds og úrvinnslan verður allt öðruvísi þegar maður gefur honum hvíld.

Þegar fólk er að neyta matar langt fram á kvöld, þá er það oft fjarverandi. Fólk kann ekki að vera, það leitar að ástæðu til að vera fjarverandi. Í athöfnum okkar tengt áti bælum við tilfinningar okkar, bælum þær í kviðarholi okkar. En ef við hættum kvöldátinu þó ekki sé nema tímabundið, þá skapast rými í líkamanum. Þegar maður hættir að neyta matar á kvöldin, þá hvílist líkaminn allt öðruvísi. Blóðstreymið fer að streyma með öðrum hætti um líkamann og dreifa næringu dagsins sem annars færi í stöðuga upptöku og úrvinnslu fram á nótt. Nýtingin verður allt önnur, nýting líffæranna verður önnur.

Við borðum 50-75% meira en við þurfum til þess að viðhalda heilsu. Þegar við breytum þessum neysluháttum, þá fer líkaminn að hvílast á annan máta og nýta næringuna með öðrum hætti. Flestir tala um hvernig þeir sofi betur og vakni hressari. Meltingin verður öflugri og örari, þar sem meltingin getur melt og nýtt til fulls það sem fólk hefur borðað.

Ég mæli með að allir prufi þetta, það er allt í lagi að neyta ekki matar eftir kl. 18 í nokkra daga. Þetta breytir svo mörgu, eins og umgengni við næringuna og sjálfan sig. Það skapast rými í samskiptum við fjölskylduna. Við verjum gríðarlegum fjármunum í að kaupa fæðu sem við notum til þess að hafna okkur. Ef við eigum tíma með fjölskyldunni þar sem við erum ekki að skófla í okkur mat fram á kvöld, þá erum við að tala um nýta mikla auðlind fyrir fjölskylduna sem við annars verjum í að kaupa mat og næra fjarveru og sundrungu. Hluti af æfingunni felst í að endurheimta mikla orku úr vansæld og neyslu í velsæld og vitund."

Smelltu hér til að sækja Lífsráðgjafann endurgjaldslaust, þar getur þú lesið um þrepin sjö til velsældar!!

   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact