
Bættu við hvítlauk og þá ertu komin með allt sem þarf!
Engifer vinnur gegn sýkingum og kemur í veg fyrir ógleði. Te með engiferrót hjálpar til við að létta á þrýstingi í höfði og lungum þegar maður er kvefaður, er slímlosandi og hjálpar manni að losna við flensu og kverkaskít.
Ef þú kvefast í vetur er eftirfarandi seiði tilvalið til góðra verka. Gott er að sjóða eins og þumlung af niðurskorinni engiferrót í vatni, leyfa suðunni að koma upp og krauma í nokkrar mínútur. Bættu við dassi af rauðum cayenne pipar og hrærðu í pottinum.
Taktu svo hitann af, kreistu hálfa sítrónu yfir, bættu tveimur laufum af söxuðum eða pressuðum hvítlauk út í og hunang til að bragðbæta.
Hvítlaukur er eitt það besta sem líkaminn fær. Fyrir utan að vera það besta sem þú færð við kvefi, þá styrkir hann ónæmiskerfi líkamans og berst við vírusa og bakteríur. Ef þú telur þig vera að kvefast eða fá flensu, þá er gott að borða tvö lauf af hvítlauk. Skerðu niður eða pressaðu tvö lauf af hvítlauk til þess að opna hann og leysa úr læðingi næringarefni sem styrkir ónæmiskerfið. Settu hvítlaukinn í matinn þinn eða gleyptu hann með eplamauki.










