STYRKJANDI BÆTIEFNI Í SKAMMDEGINU
Við vitum vel að þetta snýst um viðhorf, bætiefnin hjálpa tilNú þegar skammdegið skellur á með haustinu er gott að hafa eftirfarandi bætiefni við höndina.
B-fjölvítamín er nauðsynlegt fyrir þá sem finna fyrir geðsveiflum í skammdeginu.
Goji ber eru þekkt fyrir að hafa jákvæð áhrif á serótónín framleiðslu í heilanum. Serótónín er taugaboðefni sem hefur áhrif á andlega líðan fólks og þegar ójafnvægi kemst á framleiðslu þess finnur fólk fyrir depurð eða þunglyndi. Hægt er að kaupa Goji drykk í heilsubúðum og taka ráðlagðan skammt daglega.
Ásamt því að vera gott fyrir beinin og vöðvana, er magnesíum og kalk góð blanda fyrir geðheilsuna. Magnesíum er málmur sem styður við vöðvana og taugakerfið og kalk hefur róandi áhrif og dregur úr kvíða.
Omega 3 sem fæst m.a. með inntöku Lýsis veitir mótspyrnu við þunglyndi. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á ágæti Omega 3 við þunglyndi og rannsóknir á vegum Harvard og annarra virtra stofnana benda til þess að það dragi úr einkennum athyglisbrests (ADHD).
Munið svo að drekka nóg af vatni og minnka koffínneyslu. Regluleg útivist getur gert gæfumuninn þar sem líkaminn fær súrefni og vott af sólarljósi yfir hádaginn.










