MIKILVÆGI VATNS
Vatn er auðlind sem við eigum að þakka fyrir á hverjum degi70% af yfirborði Jarðar er vatn, 75% líkamans er vatn, 90% af blóði líkamans er vatn. Af öllu vatni jarðar er 97% í sjónum og 2% í formi íss (jöklar). 1% er ferskvatn, aðeins hluti af því er aðgengilegur og af því er stór hluti notaður í landbúnað og iðnað.
Vatn er ekki eingöngu mikilvægt mönnum, heldur er það forsenda lífs nær allra lífvera. Það er meira plöntu- og dýralíf í vatni heldur en á landi.
Vatn er sérstaklega mikilvægt fyrir okkur. Við þurfum að drekka vatn til þess að lifa og viðhalda heilbrigði. Við þurfum að baða okkur, þrífa og þvo úr vatni. Við þurfum vatn við eldamennsku og vatn kemur í formi mjólkur, ávaxta, grænmetis og fleiri afurða.
Vatn stuðlar að hitatemprun líkamans, ef okkur er of heitt kælir vatnið okkur með svita og þegar okkur er kalt, þá myndar vatnið einangrun í líkamanum. Það stjórnar blóðþrýstingi og myndar munnvatn, svita og tár. Það viðheldur raka í slímhúð, t.d. í augum og munni.
Við getum hreyft okkur jafn liðlega og raun ber vitni vegna þess að liðirnir eru smurðir af vökva, án vatns myndu liðirnir ekki smyrjast eðlilega og nýrun ekki hreinsast eins og nauðsynlegt er. Öll líffærin þurfa vökva til þess að starfa eðlilega, ekki síst heilinn sem er að stórum hluta vatn.
Drekktu vatn næst þegar þú ert þyrst(ur).










