gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 

HVAÐ ER YOGA?

Hvaðan er yoga komið og hvað þýðir það?

Yoga er fornt kerfi öndunaræfinga, líkamlegra æfinga og stellinga og hugleiðslu sem ætlar er að sameina huga, líkama og sál iðkandans. Yoga er nokkur þúsund ára gömul iðkun, komin frá Indlandi. Fyrstu kenningarnar voru skrifaðar niður af fræðimanninum Patanjali sem var uppi á 2. öld fyrir kristsburð. Orðið yoga kemur úr sanskrít og þýðir eining. Iðkunin var þannig álitin gefa iðkendum einingu með hinu guðlega. Árið 2008 er talið að hátt í 16 milljónir Bandaríkjamanna hafi stundað einhvers konar yoga og varið 5,7 milljörðum bandaríkjadala í ástundun, kaup á bókum, tækjum og öðru tengt yoga.


Það eru sex mismunandi yoga kenningar eða hugmyndafræðileg kerfi: hatha, raja, karma, bhakti, jnana og tantra yoga. Hatha yoga er þekktasta kerfið á vesturlöndum og gengur út á fjölbreyttar æfingar og stellingar. Mörg æfingakerfi eru byggð á hatha yoga, t.d. Bikram, Kripalu og ashtanga yoga. Mikið er til af upplýsingum á netinu um hugmyndafræðina að baki yoga og þau mismunandi kerfi sem í boði eru á Vesturlöndum.

Ropeyoga er m.a. byggt á kenningum og hugmyndafræði hatha yoga og raja yoga.
   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact