gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 

MUNURINN Á GLÓMOTION OG ROPE YOGA

Guðni talar um hvernig glómotion er öðruvísi en ropeyoga.

"Glómotion er samblanda af allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir. Ropeyoga er grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga. Eins og þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta.


Síðan förum við ofan í það með því að kenna fólki flæðisæfingar, en það eru athyglishreyfingar. Þetta er smáhreyfing sem við förum í, í fullri vitund og beitum þessum kviðvöðvum, kjarnanum sem við erum búin að virkja í gegnum Ropeyoga, til þess að ná ennþá meiri tökum á þessari tilvist. Svo bætum við við þetta öndunaræfingum sem við köllum lungnaþennsluæfingar, þá opnum við þindina, rifjahylkið, virkja lungnabörkinn. Í mörgum tilfellum notum við aðeins lítinn hluta af öndunarfærum okkar til þess að draga að okkur lífafl og virkja okkar tilvist til fulls. Þetta eru fyrstu þrír þættirnir og það sem Ropeyoga býður upp á.

Glómotion byggir á þessum þremur þáttum, en við höfum bætt við þetta mótstöðuæfingum, sem er raunverulega yoga með lóðum, mótstöðu. Af hverju yoga, vegna þess að við erum í fullri vitund í upplifun vöðvans og vitund gagnvart viðnámi hugans við hreyfingar, ferlin sem eru í líkamanum og viðnámið sem skapast þegar við hægjum svona mikið á. Flest okkar eru að glíma við það að vilja ekki meðvitað vera til staðar í okkar eigin tilvist. Með því að lyfta léttum lóðum löturhægt í fullri vitund er hugleiðsla. Svo bætum við stöðuæfingum við, en þær eru byggðar á yogastöðum, en þær eru byggðar á endurtekningum. Stöðurnar eru byggðar á fimm ferlum, The five Tibetan rights, Tíbetskur munkur kenndi fólki þessar æfingar og taldi þeim trú um að æfingarnar myndu hjálpa fólki að viðhalda líkamlegri heilsu og orkuflæði. Ég bætti við þetta fimm stöðum í viðbót til þess að heildarstyrking líkamans næðist. Svo bætti ég við djúpteigjum sem ég er búinn að þróa og byggjast á því að opna mjaðmirnar, stóru lærvöðvana framan og aftan á og bakið. Bakið og fótleggirnir vinna saman í gegnum kviðinn ef nálgunin er rétt. Það er mikil áhersla lögð á þetta.

Þegar við blöndum æfingunum saman er líkaminn að upplifa hvatningu eða nýtt áreiti í hverjum tíma, sem er aldrei meira áreiti en það að líkaminn vinnur úr því á milli tíma. Það er ekkert kerfi sem skilar jafn miklum árangri á jafn skömmum tíma og þessi nálgun. Það eru tvær útfærslur, annars vegar er það Glómotion í 70 mín fyrir byrjendur sem hentar mjög vel fyrir þá sem hafa stundað Ropeyoga eða þá sem hafa ekki komið í Ropeyoga því við kennum böndin í Glómotion, en áherslan er mismikil, þetta er meira umfang á skemmri tíma. En sumir vilja það og við erum að uppfylla þarfir þeirra. Glómotion framhald (flex) er 90 mínútna tími. Það gefur okkur meiri tíma og er öðruvísi nálgun. Það er meira umfang en sama uppbygging. Eini munurinn er sá að í Glómotion fyrir byrjendur erum við með handlóð en í framhaldsnámskeiðunum (flex) erum við með tæki. Við getum jafnframt lagt meira á viðkomandi á 90 mínútum en 70 mínútum. En grunnurinn er sá sami.

Ég hvet þá sem hafa farið á Ropeyoga námskeið, hvort sem er byrjendanámskeið eða framhald til þess að fara á Glómotion fyrir byrjendur, því þau fá meira út úr því. Eins hvet ég þá sem hafa tekið Glómotion byrjendanámskeiðin til þess að fara á framhaldsnámskeiðin (flex). Þetta er spurning hvað fólk er tilbúið til þess að leggja á sig og eftir hverju það sækist.

Mikil áhersla er lögð á næringu í Glómotion, það er alltaf svo mikil áhersla á líkamsrækt í allri þjálfun, en ef vel er að gáð er ekkert mikilvægara en næringin. Ásetningur næringar er það sem skiptir mestu máli. Ef maður nærir sig ekki með ásetningi er maður að næra sig með þeim dulda ásetningi að næra ekki ásetning, þá er maður að troða í sig orku en þessi orka verður að fitu. Ef maður vinnur með ásetning og virkjar þá orku sem maður setur í sig, þá nær maður miklu meiri árangri heldur en þeir sem gera það ekki. Ég hef starfað við þetta í 30 ár og get fullyrt að þeir sem sinna næringunni ná allt öðrum árangri heldur en þeir sem gera það ekki. Þarna komum við inn á forsenduna sem er innslagið í okkar nálgun, allt sem þú veitir athygli vex og dafnar, hvort sem það er sem þú vilt eður ei. Það er því gríðarlega mikilvægt að vanda sig, því við erum orkuumbreytar og skaparar og ráðum öllu um það hvort við séum að næra vansæld eða velsæld."
   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact