gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 

ROPEYOGA BÆTIR FORGJÖFINA - SPILAR ÞÚ GOLF?

Liðleiki, styrkur og snerpa er lykilatriði í golfi. Ropeyoga og Glómotion eru tilvalin æfingakerfi fyrir golfara.

Golfarar verða að vera sveigjanlegir. Sveiflan krefst þess að þú hreyfir kylfuna í langri hreyfingu sem snýst um mænuna og því er liðleiki lykilatriði. Þeir hlutar líkamans sem reynir mest á í golfi eru mjóbakið, mjaðmir, axlir og kviðvöðvar. Þá skiptir jafnvægið miklu máli vegna þess að golfsveiflan er nákvæmnishreyfing og þá er mikilvægt að standa rétt og sveifla á þyngdarpunktinum.

Það er mikilvægt að þjálfa allan líkamann, ekki er nóg að vera með sterka upphandleggi til þess að ná sem mestum krafti út úr sveiflunni, sveiflan reynir á allan kroppinn og krefst þess að þú hafir snerpu og styrk frá fótum og út í fingurgóma.

Þar sem golf sveiflan er síendurtekin reynir á þol og úthald, ef þig skortir úthald og þol þá ferðu fljótt að þreytast sem verður til þess að þú ferð að hitta kúluna illa, hún fer ekki nógu langt og missir marks.

Fjölbreytni er því lykilatriði til þess að byggja upp styrk fyrir golfið um páskana og í sumar. Ropeyoga og Glómotion æfingakerfin eru sniðnar fyrir golfara. Þú eflir styrk, snerpu, liðleika og jafnvægi með iðkun Ropeyoga og Glómotion. Glómotion er auk þess með lyftingar sem hluta af æfingunum sem styrkja vöðva og efla úthaldið.

Þeir sem leggja ástundum á Ropeyoga og Glómotion bæta árangurinn í golfi. Eins einfalt og það hljómar, er staðreyndin einföld. Í Ropeyoga þjálfar þú vöðva líkamans sem þú annars beitir ekki í daglegu lífi, en veita stuðning og snerpu í þeirri líkamsbeitingu sem sveiflan krefst. Lykilatriði í golfi er að vera með gott bak og Rope Yoga eflir kviðvöðvana sem veita bakinu stuðning og mótvægi. Þú eflir styrk, snerpu, liðleika og jafnvægi. Glómotion er auk þess með lyftingar sem hluta af æfingunum sem styrkja vöðva og efla úthaldið.
 
"Mitt áhugamál er og verður golf á meðan heilsan leyfir og ég fæ einhverju ráðið, og eyði ég svo gott sem öllum lausum stundum við þá iðkun og nýt samvista við maka og frábæra vini úti á grænum grundum. Rope Yoga er eins og sniðið fyrir þessa íþrótt, það styrkir kroppinn og undirbýr hann fyrir golfið bæði til líkama og sálar." -Lucinda Grímsdóttir.
 
   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact