gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 

HVAÐ LANGAR ÞIG?

Ertu vel stæð(ur)? Ertu grönn/grannur? Við veitum því of oft athygli sem við viljum ekki í stað þess að veita því athygli sem við viljum.

"Flestir eru uppteknir af því sem þeir vilja ekki. Kreppan gengur út á þetta hugarástand, okkur hættir til að vera með alla athyglina á öllum sársaukanum, vera of þungur, vera það sem maður vill ekki vera. Þjáningin kemur vegna þess að við erum alltaf með athyglina á því sem við viljum ekki, hugsanirnar um það sem við óttumst.


Við þurfum að finna leiðir til þess að veita athyglinni í það sem maður vill. Ef maður vill ekki vera fátækur á maður að hugsa um að vera vel stæður, ef maður vill ekki vera feitur, þá á maður að hugsa um hvað maður vill vera grannur.

Fyrsta verkefnið sem ég bið fólk um að gera þegar ég fer með þeim í gegnum markmið er að ná sér í blað og setja línu í gegnum mitt blaðið, skrifa vinstra megin á blaðið allt það sem maður vill ekki. Telja allt upp sem maður vill ekki. Hægra megin á blaðið á maður svo að skrifa allt sem maður vill. Síðan brýtur maður blaðið saman þannig að það sem maður vill standi upp, en það sem maður vill ekki lendir undir. Þá á ekki að þurfa að veita athygli því sem maður vill ekki, heldur veita aðeins athygli það sem maður vill.

Maður þarf alltaf að veita athygli tilganginum, af hverju viltu það sem þú vilt, þegar þú ert búin að því, þá býr maður sér til markmið. Markmið er hvernig maður útfærir það sem maður langar til. Tilgangurinn er ástæðan fyrir því af hverju maður vill eitthvað. Ef engin ástæða er, þá er maður að bíða eftir því að ná markmiðinu, ef tilgangurinn er ljós þá er maður að vinna að markmiðinu í augnablikinu. Tilgangurinn verður kjölfesta hamingjunnar, forsenda ástríðunnar, en markmið sem er án tilgangs er forsenda skorts.

Við verðum að leyfa okkur, finnast við eiga skilið að ná þessum markmiðum, eða öðlast það sem við viljum. Ef okkur finnst við ekki eiga það skilið, þá leyfum við okkur ekki að öðlast það. Við verðum að spyrja okkur hvað við þurfum að gera, hverju við þurfum að breyta til að við getum leyft okkur að öðlast velsæld.

Þetta er ekki flókið að skilgreina hvað við viljum, við viljum  hamingju, heilbrigði og velsæld. Við þurfum að breyta ferlum vansældar í ferli velsældar. Leyfa okkur að upplifa velsæld, stærsta ferlið er að leyfa okkur að elska í staðinn fyrir að hafna. Okkur hefur verið kennt að skammast okkar og við sjáum um að skamma okkur og skammast okkar. við verðum háð því að skammast okkar, það hefur breyst í ferli að skammast sín heldur en að elska okkur.

Heiminum er stjórnað af sektarkennd. Fyrirlestrarnir og hugmyndafræðin að baki Ropeyoga ganga út á að leysa okkur úr viðjum sektarkenndar og vanmáttar, yfir í það að upplifa velsæld og ást og kærleik í garð okkar sjálfra og annarra. Valdi ógnar og refsingar hefur verið beitt ótakmarkað, við getum á hvaða tíma sem er lært að brjótast úr viðjum þessara ósanninda, að við séum ekki fyrirfram sek, fæðumst ekki í synd eða sekt, heldur séum frjáls og óháð.

Við verðum að vilja ást og velsæld eða heilbrigði og velsæld til þess að öðlast það. Það er ekki flóknara heldur en það að taka ákvörðun og leyfa sér framgang. Góða ferð!

 

   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact