Velkomin í RopeYoga!
RopeYogaSetrið býður upp á kennslu í RopeYoga og Gló Motion. Æfingarnar byggja á því að virkja kviðinn ásamt því að beita athygli, öndun, og átaki til þjálfunarinnar, með uppbyggingu og aðgangi að vöðvum og brennslu hitaeininga í huga.>> Um Rope Yoga >> Munurinn á Rope Yoga og GlóMotion
GlóMotion námskeið
Á námskeiðunum er byggt ofan á undirstöðuatriði Rope Yoga með persónulegri næringaráðgjöf, fyrirlestri og glóslow æfingum.
Glóslow æfingarnar eru gerðar afar hægt og með fullri vitund og ásetningi. Áhersla er lögð á öndunar-, flæðis- og stöðuæfingar, mótstöðuæfingar í tækjum, teygjur og slökun. Litlir hópar (7-10 manns) tryggja hámarks árangur. Ný byrjenda og framhaldsnámskeið hefjast 30. og 31. ágúst.
>> Um GlóMotion Byrjendur >> Um GlóMotion Framhald
GlóMotion karlanámskeið
Þessi námskeið eru hugsuð sérstaklega fyrir karlmenn. Það verður sérstaklega tekið á stirðleikanum og orkustyrk og úthaldi.
Það eru aðrar forsendur í líkömum karlmanna, m.a. vegna þess hvernig við erum byggðir sem gerir það að verkum að þeir eru með stærri vöðva og aflmeiri, en ekki eins mjúkir og sveigjanlegir. Með GlóMotion er hægt að taka vel á þessum þáttum og auka liðleika. Nýtt námskeið hefst 30. ágúst.
>> Um GlóMotion Karlanámskeið >> Skrá mig núna
Rope Yoga námskeið
Markmið Rope Yoga námskeiða er að nemendur njóti betri tengsla við eigin líkama og huga. Lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt atgervi.
Farið er í gegnum heilsuræktarkerfi Rope Yoga með áherslu á öndunaræfingar, flæðisæfingar, stöðuæfingar, teygjur og slökun. Kennd eru lífsviðhorf Rope Yoga sem grundvöllur að lífi í kærleika og umhyggju. Ný byrjenda og framhaldsnámskeið hefjast 30. og 31. ágúst.
>> Um Rope Yoga >> Yfirlit yfir Rope Yoga námskeið
Sex vikna orku og aðhaldsnámskeið
Á þessu sex kvölda aðhaldsnámskeiði fer Guðni Gunnarsson í gegnum hugrenningatengsl og hegðunarferli varðandi mat, drykk, hreyfingu og lífsstíl.
"Þú ert jafn þung(ur) og þú "vilt" vera í dag, enda hafa ákvarðanir þínar í mat og hreyfingu gert þig að því sem þú ert," segir Guðni. Hann hvetur fólk til þess að taka stjórnina í sínar hendur og axla ábyrgð á orku sinni. Námskeið hefst 28. september næstkomandi.
>> Um orku og aðhaldsnámskeið >> Skrá mig núna
Orku og aðhaldsnámskeið - umsögn
Orku og aðhaldsnámskeiðið er algjör snilld! Ég hef aldrei áður upplifað eins miklar breytingar til hins betra á 6 vikum. Með breyttu mataræði og lífsviðhorfi hef ég öðlast margfalt meiri orku og grennst.
Ég vakna hress á morgnanna og mæti á æfingu, allt gengur betur í vinnunni því ég geri ekki lengur óraunhæfar kröfur til sjálfrar mín og kærastinn brosir hringinn því loksins hef ég orku og vilja til að gera skemmtileg hluti eftir vinnu.
>> Lestu meira >> Skrá mig núna
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| Lífsspeki rope yoga | Bætiefni í skammdeginu | Kennarar setursins | skoða verslun |

















