gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 
GLÓANDI, SEÐJANDI, FRÍSKANDI
Veitingastaðurinn Gló hefur tekið til starfa í sama húsnæði og Rope Yoga Setrið í Listhúsinu við Laugardal, Engjateig 19. Aðaláhersla staðarins er á lífræna næringu; fæðu sem er í senn nærandi, seðjandi, frískandi og fær fólk til að glóa.
"Við viljum að fólk komi á veitingastaðinn og fari þaðan eins og það fer úr Rope yoga tímunum, algjörlega fullnært á líkama og sál," segir Guðni Gunnarsson sem er eigandi staðarins ásamt eiginkonu sinni, Guðlaugu Pétursdóttur. Hann bætir við að hugmyndafræðin á bak við veitingastaðinn sé sú sama og á bak við Rope Yogað, þ.e.a.s, að vekja fólk til vitundar og taka ábyrgð á eigin tilvist. Hann vill sjá fólk koma á veitingastaðinn, ekki til þess að borða eða éta, heldur til þess að næra sig. "Næringin sem slík er ekki nóg heldur verður fólk að hafa réttan ásetning með henni. Þú ert það sem þú borðar, hugarfarslega, tilfinningalega og líkamlega. Okkar ásetningur og framsetning verður í tengslum við þetta, sem gerir Gló að öðruvísi veitingarstað."

Kærleiksrík fæða

Matseðill veitingastaðarins er fjölbreyttur og samanstendur hann af grænmeti, ávöxtum, kornfæðu, léttri kjötvöru og fiski.. Þannig er hægt að byrja daginn á Gló með lífrænum kaffi- eða tesopa, hafragraut, lífrænum söfum og hveitigrasi. Í hádeginu er boðið upp á rétt dagsins og náttúrulegar súpur eru alltaf á boðstólum en veitingastaðurinn er í samstarfi við Örlyg Ólafsson hjá Súpubarnum. Einnig er boðið upp á vefjur, hráfæði og ýmsa smárétti. "Við bjóðum upp á virkilega holla og kærleiksríka næringu. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi því við ætlum ekki að vera með neinar öfgar í framleiðslunni, ekki nema þá hvað varðar lífræna hlutann og kærleikann," segir Guðni sem einnig mun bjóða upp á ráðgjöf og stuðning sem felst í því að fólk taki ábyrgð á því hvað það er að næra.
Lesið nánar um veitingastaðinn á heimasíðunni www.glo.is


   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact