Markmið námskeiðsins er að nemendur njóti betri tengsla við eigin líkama og huga. Lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt atgervi og að nemandinn öðlist aukinn styrk, samhæfingu og liðleika. Farið er í gegnum heilsuræktarkerfi Rope Yoga í bekkjunum og kenndir grunnþættir öndunar og slökunar, ásamt teygju- og flæði-æfingum. Farið er í undirstöðuatriði 7. þrepa hugræktarkenninga Rope Yoga með sérstaka áherslu á að efla jákvæða sjálfsmynd. Mæting þrisvar í viku.
Verð 28.900 kr.