gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 

Rope Yoga lífspekin snýst um  hugarástand þakklætis

Og lífspekin er einföld.  "Verum breytingin."  Rope Yoga gengur útá það að við séum breytingin sem til er ætlast og að við veljum viðbragð, sem gengur útá að taka ábyrgð á því sem maður ætlast til að framtíðin beri í skauti sér.

 
BOWENTÆKNI

Bowentækni er áhrifarík, slakandi og heildræn meðferð. Hún hefur áhrif á ólíklegustu kvilla og verki og er alls hættulaus.

Það sem gerir Bowentækni eina af mest spennandi meðferðum í boði í dag er að í stað þess að meðhöndlari sé að vinna á svæði þar sem vandamálið er, virkjar meðhöndlari hæfni heilans til að laga eigin vandamál með röð sérstakra hreyfinga.

  more ...
HVAÐ LANGAR ÞIG?

Ertu vel stæð(ur)? Ertu grönn/grannur? Við veitum því of oft athygli sem við viljum ekki í stað þess að veita því athygli sem við viljum.

"Flestir eru uppteknir af því sem þeir vilja ekki. Kreppan gengur út á þetta hugarástand, okkur hættir til að vera með alla athyglina á öllum sársaukanum, vera of þungur, vera það sem maður vill ekki vera. Þjáningin kemur vegna þess að við erum alltaf með athyglina á því sem við viljum ekki, hugsanirnar um það sem við óttumst.

  more ...
ROPEYOGA BÆTIR FORGJÖFINA - SPILAR ÞÚ GOLF?
Liðleiki, styrkur og snerpa er lykilatriði í golfi. Ropeyoga og Glómotion eru tilvalin æfingakerfi fyrir golfara.

Golfarar verða að vera sveigjanlegir. Sveiflan krefst þess að þú hreyfir kylfuna í langri hreyfingu sem snýst um mænuna og því er liðleiki lykilatriði. Þeir hlutar líkamans sem reynir mest á í golfi eru mjóbakið, mjaðmir, axlir og kviðvöðvar. Þá skiptir jafnvægið miklu máli vegna þess að golfsveiflan er nákvæmnishreyfing og þá er mikilvægt að standa rétt og sveifla á þyngdarpunktinum.
  more ...
MUNURINN Á GLÓMOTION OG ROPE YOGA

Guðni talar um hvernig glómotion er öðruvísi en ropeyoga.

"Glómotion er samblanda af allri nálgun við líkamann sem ég ber mesta virðingu fyrir. Ropeyoga er grunnurinn, ekkert hefur sömu áhrif á djúpkviðinn eins og Ropeyoga. Eins og þeir sem hafa stundað Ropeyoga hafa kannski skilið að þegar maður lærir að sleppa fótleggjunum og notar þunga fótleggina til þess að virkja kviðinn, þá fer maður dýpra inn í kjarna líkamans heldur en maður getur á annan máta.

  more ...
HVAÐ ER YOGA?

Hvaðan er yoga komið og hvað þýðir það?

Yoga er fornt kerfi öndunaræfinga, líkamlegra æfinga og stellinga og hugleiðslu sem ætlar er að sameina huga, líkama og sál iðkandans. Yoga er nokkur þúsund ára gömul iðkun, komin frá Indlandi. Fyrstu kenningarnar voru skrifaðar niður af fræðimanninum Patanjali sem var uppi á 2. öld fyrir kristsburð. Orðið yoga kemur úr sanskrít og þýðir eining. Iðkunin var þannig álitin gefa iðkendum einingu með hinu guðlega. Árið 2008 er talið að hátt í 16 milljónir Bandaríkjamanna hafi stundað einhvers konar yoga og varið 5,7 milljörðum bandaríkjadala í ástundun, kaup á bókum, tækjum og öðru tengt yoga.

  more ...
SKREFIN SJÖ TIL VELSÆLDAR

Skrefin sjö eru ferðalag til velsældar

Þau hvetja okkur til að taka ábyrgð á lífi okkar og leysa úr læðingi það sem í okkur býr.  Allir sem stunda Rope Yoga og Glómotion eru hvattir til að fylgja þessum 7 skrefum.

1. Að vakna til vitundar

2. Að vera ábyrg(ur)

3. Ásetningur

4. Trúfesta

5. Að leyfa framgang

6. Innsæi

7. Þakklæti

>> Smelltu hér til að lesa meira um skrefin sjö til velsældar!

>> Smelltu hér til að sækja lífsráðgjafann endurgjaldslaust!

  more ...
MIKILVÆGI VATNS
Vatn er auðlind sem við eigum að þakka fyrir á hverjum degi

70% af yfirborði Jarðar er vatn, 75% líkamans er vatn, 90% af blóði líkamans er vatn. Af öllu vatni jarðar er 97% í sjónum og 2% í formi íss (jöklar). 1% er ferskvatn, aðeins hluti af því er aðgengilegur og af því er stór hluti notaður í landbúnað og iðnað.

Vatn er ekki eingöngu mikilvægt mönnum, heldur er það forsenda lífs nær allra lífvera. Það er meira plöntu- og dýralíf í vatni heldur en á landi.   more ...
HVAÐ ER GLÓMOTION?

Guðni segir okkur frá því hvernig námskeiðið fer fram

"Þetta eru þrjú skipti í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga / laugardaga 90 mínútur í senn. Á mánudögum byrjum við alltaf á að taka öll böndin sem er undirstaðan í Gló Motion.

Því næst förum við í stöðuæfingar, en þær hafa tvenns konar hlutverk. Þær eru mjög styrkjandi og örva vöðva líkamans, auk þess hafa þær áhrif á orkustöðvarnar og allt flæði. Síðan hafa þær gríðarleg áhrif á þol og úthald vegna endurtekninga þeirra. Við byrjum með 7 endurtekningar og endum í 21 í síðustu viku námskeiðsins. Við gerum alltaf eina superbrain yoga æfingu í hvert skipti.

  more ...
STYRKJANDI BÆTIEFNI Í SKAMMDEGINU
Við vitum vel að þetta snýst um viðhorf, bætiefnin hjálpa til

Nú þegar skammdegið skellur á með haustinu er gott að hafa eftirfarandi bætiefni við höndina.
B-fjölvítamín er nauðsynlegt fyrir þá sem finna fyrir geðsveiflum í skammdeginu.

Goji ber eru þekkt fyrir að hafa jákvæð áhrif á serótónín framleiðslu í heilanum. Serótónín er taugaboðefni sem hefur áhrif á andlega líðan fólks og þegar ójafnvægi kemst á framleiðslu þess finnur fólk fyrir depurð eða þunglyndi. Hægt er að kaupa Goji drykk í heilsubúðum og taka ráðlagðan skammt daglega.   more ...
HÖFNUM OKKUR 800 SINNUM Á DAG
„Ég vissi alltaf að ég væri orka og sál en ekki hugsanir mínar. Á tímabili voru hugsanir mínar að hræða úr mér líftóruna, ég réð ekki við þær og vissi að ég yrði að ná taki á huga mínum ef ég ætlaði einhvern tíma að öðlast ró.“

Viðtal við Guðna Gunnarsson eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is

„Tilgangurinn er að uppgötva frjálsan vilja og skilja að við erum skaparar sem eigum að taka á okkur ábyrgð, fyrirgefa sjálfum okkur og vera ekki háð gærdeginum.“   more ...
ENGIFER ER ÓMISSANDI Í TEIÐ

Bættu við hvítlauk og þá ertu komin með allt sem þarf!

Engifer vinnur gegn sýkingum og kemur í veg fyrir ógleði. Te með engiferrót hjálpar til við að létta á þrýstingi í höfði og lungum þegar maður er kvefaður, er slímlosandi og hjálpar manni að losna við flensu og kverkaskít.

Ef þú kvefast í vetur er eftirfarandi seiði tilvalið til góðra verka. Gott er að sjóða eins og þumlung af niðurskorinni engiferrót í vatni, leyfa suðunni að koma upp og krauma í nokkrar mínútur. Bættu við dassi af rauðum cayenne pipar og hrærðu í pottinum.

  more ...
GEFUM MELTINGUNNI HVÍLD Á KVÖLDIN
Guðni talar um kosti þess að borða ekki eftir kl. 18
 
"Það tala sumir um að það sé hollt að borða ekki 3-4 tímum áður en maður leggst til hvílu. Höfuðáherslan er að gefa meltingarveginum tækifæri til að hvílast og búa til rými fyrir líkamann þannig að við getum unnið almennilega úr því sem við höfum innbyrgt. Líkaminn er orkuvél, við erum í stöðugri neyslu frá morgni til kvölds og úrvinnslan verður allt öðruvísi þegar maður gefur honum hvíld.
  more ...
GÚRKA ER INNIHALDSRÍK AF VÍTAMíNUM

Hreinsar lifur, nýru og þvagrás, hvetur meltinguna

Gúrkur eru 90% vatn og eru þekktar fyrir að vera kælandi vegna vatnsmagns. Löngum hefur verið talað um nærandi eiginleika gúrkunnar fyrir augnlok og kinnar, það er aldagamalt ráð að setja gúrkusneiðar yfir augun til þess að losna við bauga. Þó ekki sé vitað um rannsóknir sem styðja þessa meðferð, er hún notuð daglega víða um heim.

  more ...
KREPPA HUGARFARSINS

Viðtal við Guðna Gunnarsson

Texti: Steingerður Steinarsdóttir

Guðni Gunnarsson höfundur Rope Yoga-kerfisins er meira en líkamsræktar-þjálfari. Hann hefur unnið markvisst að því að breyta hugarfari sínu til heilbrigðari og betri vegar og er sannfærður um að með því að lifa í núinu og taka ábyrgð á gerðum okkar geti ekkert stöðvað okkur. Hann þekkir kreppuna en hefur svolítið aðrar hugmyndir um hana en flestir.

  more ...
HEILSUFÆÐI SEM FORVÖRN

Are Waerland var einn af frumkvöðlum náttúrulækninga-stefnunnar á Norðurlöndum og hafði mikil áhrif á dr. Jónas Kristjánsson, stofnanda NLFÍ. Waerland lifði nánast eftir eftirfarandi orðum Hippókreatesar, frumherja læknavísindanna: “Fæðan skal vera vera yðar lyf.”

Are Waerland var sannfærður um að það væri hægt að koma í veg fyrir sjúkdóma og halda góðri heilsu til hárrar elli með mataræði sem náttúran ætlaði okkur.

  more ...
OFSAFENGIÐ ATFERLI VIRKAR EKKI
"Það er um að gera að fara hægt og varlega af stað og gera hlutina með mýkt því það er löngu sannað að líkaminn breytist ekki með ofbeldi og ásetningi. Mikilvægast er að leggja af stað með jákvætt hugarfar og setja sér langtímamarkmið, í stað þess að fara af stað með heift líkt og fólk gerir gjarnan," segir Guðni Gunnarsson í viðtali við dagblaðið 24 stundir.   more ...
LIFANDI NÆRING

Þegar við þurfum að velja hvað við ætlum að elda er gott að hafa í huga að jurtamatur er bragðbetri og auðmeltanlegri en annar matur og ekki síður fjölbreyttur.  Hann skilur eftir sig þægilega ánægju- og vellíðunarkennd, fínleika og léttleikatilfinningu, lífsorku og frískleika hugar og líkama.

Þvert ofan í álit margra reynist fólk á jurtafæði almennt vera sterkara, þrekmeira, þolnara og liðugra en flólk sem lifir mest á kjötfæði.  Íþróttamenn á jurtafæði hafa til að mynda náð hlutfallslega betri árangri í íþróttum en kjötétandi félagar þeirra.

  more ...
   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact