gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 
STARFSEMI ROPE YOGA SETURSINS
Rope Yoga Setrið hóf starfsemi í janúar 2007.Markmið setursins er að skapa andrúmsloft innri friðar og þakklætis fyrir iðkendur hug- og heilsuræktar. Boðið er upp á Rope Yoga kennslu í þremur glæsilegum æfingasölum sem samanlagt gefa pláss fyrir 44 Rope Yoga bekki. Á Setrinu er einnig boðið upp á ýmisskonar námskeið og fyrirlestra tengda hug- og heilsurækt auk þess sem lífræni veitingastaðurinn Gló er einnig partur af Setrinu. Rope Yoga Setrið í Laugardalnum er fyrirmynd sambærilegra Rope Yoga hug- og heilsuræktarstöðva í Evrópu og Bandaríkjunum.
 
HUG- OG HEILSURÆKT

Rope Yoga heilsuræktarkerfið er einstakt sinnar tegundar því að það býður upp á nýja gerð æfinga með aðal áherslu á kviðarholsvöðvana. Æfingarnar ganga út á það að beita athygli, öndun, og átaki til þjálfunarinnar, með uppbyggingu og aðgangi að vöðvum og brennslu hitaeininga í huga.

>> Um Rope Yoga þjálfun

>> Um Glómotion þjálfun

>> Um Rope Yoga heimspekina

 
GLÓANDI NÆRING

Í sama húsnæði og Rope Yoga Setrið er veitingastaðinn Gló að finna. Veitingastaðurinn leggur aðaláherslu á lífræna næringu og er matseðill staðarins afar fjölbreyttur. Í hádeginu er boðið upp á rétt dagsins  en annars eru  lífrænar súpur, vefjur, salöt, kökur, kaffi og safar alltaf á boðstólum, svo eitthvað sé nefnt. Við hönnun staðarins var leitast við að búa til róandi umhverfi þar sem kyrr er vakin og henni viðhaldið. Þannig ná gestir staðarins að nærast tilfinningalega um leið og þeir nærast andlega. Lesið nánar um veitingastaðinn á glo.is

 


   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact