gló
fréttir
lífspeki
námskeið
stundaskrá
  starfsemi
kennarar
umsagnir
setrið
verslun
 


Rope Yoga Setrið
Listhúsinu í Laugardal
sími: (+354) 535 3800
setrid@ropeyogasetrid.is

 

 

 
Guðni Gunnarsson
gg@ropeyoga.com
Sími: 535-3800
GSM: 843-6200

Guðni er stofnandi og upphafsmaður Rope Yoga hugmyndafræðinnar. Guðni Gunnarsson er einn af frumkvöðlum Íslands á sviði líkams og heilsuræktar. Hann hefur starfað við fagið í meira en 25 ár og er m.a. fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi.

Guðlaug Pétursdóttir
gullap@mac.com
GSM: 843 4600

Guðlaug Pétursdóttir er framkvæmdarstjóri Rope Yoga Setursins. Hún er er Rope Yoga kennari og einnig útskrifuð sem Yoga kennari frá Kripalu í Bandaríkjunum. Hún hefur unnið í heilsuræktarmálum á tólfta ár í Los Angeles.
Sigurjón Friðjónsson
sigurjonf@ruv.is

Sigurjón hefur kennt Rope Yoga byrjendanámskeið og ástundun síðan 2008. Það sem honum finnst mest gefandi við kennsluna er að fylgjast með framförum nemenda og ekki síður gaman að sjá oft á tíðum þær breytingar sem verða á fólki fyrir og eftir tímann.

Ásta Agnarsdóttir
astamagnars@simnet.is
GSM: 898-7939

Ásta hefur stunda Rope Yoga í sjö ár og lauk kennaranámi 2006.  Hún kennir nú ástundun og segir kerfið er í stöðugri þróun og hún því alltaf að læra meira um líkamann og hvað hægt er að gera betur. Einnig segir hún þetta vera yndislega leið til að kynnast sjálfum sér betur og öðlast betra líf. Ásta er einnig lærður nuddari, og svæða- og viðbragðsfræðingur ásamt því að vera ilmolíufræðingur og hafa lokið námi í Fit Pilates. Seinustu árin hefur hún rekið eigin nuddstofu. 

Steinunn Steinþórsdóttir
st.st@mi.is

Steinunn byrjaði að kenna ástundunar-námskeið 1. september 2009. Hún hefur sjálf upplifað magnaða breytingu á líkama og sál eftir að hún kynntist Rope Yoga. Henni finnst það að miðla og kenna Rope Yoga og sjá breytingarnar á allri líðan fólks sé upplifun sem er bæði gefandi og skemmtileg. "Eitt af mörgum gullkornum í Rope Yoga er að þú lærir að þykja vænt um þig og fara vel með þig, þá fer það að skipta þig máli að lifa heilbrigðum lífsstíl. Það fer að skipta máli hvað og hvernig þú borðar og nærir þig og þína. Þú hlúir að þér og þú dafnar, þú ferð að skilja orðið tilgangur."

Þorvaldur Þorsteinsson
kennsla@kennsla.is
GSM: 822-36999

Þorvaldur Þorsteinsson hefur starfað jöfnum höndum sem rithöfundur, myndlistamaður og kennari síðan árið 1990. Meðal þekktustu ritverka hans eru Skilaboðaskjóðan og bækurnar um Blíðfinn, sem þegar hafa komið út í 8 löndum og hlotið margvísleg verðlaun. Þá hafa verið sett upp eftir hann 14 leikrit, þar á meðal And Björk, of course, en fyrir það hlaut hann Grímuna, hin íslensku leiklistarverðlaun árið 2003.
Ármann Kojic
armann@armann.com

Ármann Kojic er fyrrum afreksmaður í ólympískum kappróðri og siglingum. Hann byrjaði að æfa RopeYoga fyrir 4 árum út í Los Angeles og tók kennaranám á síðasta ári. Hann stundar einnig Ashtanga Yoga og hugleiðslu að kappi. Hann er mikill áhugamaður um kenningarnar á bak við RopeYoga og er heillaður af heimspekinni og næringarhlutanum á bak við RopeYoga. “Það sem er svo yndislegt að átta sig á er að það er ekkert aðskilið og þegar fólk kemur til okkar og vill taka á einhverjum einum þætti í lífi sínu sér það fljótt árangur á öllum sviðum. Þetta er sannarlega hug og heilsurækt.”

Jónheiður Ísleifsdóttir
jonheidur@gmail.com
GSM: 6606381

Jónheiður heillaðist strax af æfingum og heimspeki Rope Yoga og GlóMotion.  Þetta var allt annað en hún hafði kynnst á ótal aðhaldsnámskeiðum í gegnum tíðina.  Loksins fann hún þá heildrænu nálgun á heilsu sem hún hafði leitað að í svo mörg ár.  Samhliða því að stunda GlóMotion æfingar af krafti hefur hún starfað á Setrinu og tileinkað sér lífstíl GlóMotion á öllum sviðum lífs síns.  Jónheiður útskrifaðist af kennaranámskeiði haustið 2010 og kennir nú byrjenda námskeið í Rope Yoga.

Þór Guðnason
thorgudna@gmail.com
GSM: 697-6700

Þór Guðnason hefur lært RopeYoga og stundað um árabil. Hann hefur lært einkaþjálfarann hjá ISSA í bandaríkjunum. Þór hefur einnig kynnt sér Ashtanga Yoga ásamt Kripalu Yoga.
   
  Copyright © 2006 - 2007 Rope Yoga Setrið Ehf, All rights reserved | home | contact