Steingerður Steinarsdóttir
Ritstjóri hann/hún
Umsögn um námskeiðið Lífsfærni/Fully Alive Coaching
Að koma fyllilega til sjálfs sín er ekki bara gagnlegt heldur líka skemmtilegt. Á helgarnámskeiði hjá Guðna Gunnarssyni opnast ný og góð veröld. Þar er dýrmætasta gjöfin frjáls vilji og hver og einn ber ábyrgð á sjálfum sér og sinni hamingju. Þetta eru einföld sannindi sem fylgt hafa mannkyninu frá því í árdaga en það einfalda er stundum það flóknasta. Guðni bendir á leiðir til að leysa úr flækjunum og tileinka sér heilbrigðari lífsviðhorf.
Það sem kom mest á óvart var ekki sá boðskapur sem hann flutti í fyrirlestrunum heldur sá einstaki og magnaði sköpunarkraftur sem leystist úr læðingi meðal þátttakenda. Þægileg samstaða og hlýlegt andrúmsloft myndaðist í hópnum og við upplifðum öll hversu gefandi samskipti geta verið en á tímum tækni þar sem allt kapp er lagt á skapa afþreyingu gleymist oft að samræður, rökræður, glens og samvera eru manninum nauðsynleg og þar kviknar gleðin. Ég þakka Guðna kærlega fyrir mig og væri alveg tilbúin í annað námskeið strax um næstu helgi.
Arnheiður Árnadóttir
Kæri Guðni,
Arnheiður heiti ég og var á námskeiði hjá þér í vor byggðu á verkefnabókinni. Það gleður mig að segja þér að ég hef síðan tekið mun meiri ábyrgð á mér og mínu lífi, ég er t.d. hætt að nota líkama minn sem sorptunnu fyrir allan þann mat sem á vegi mínum verður og hugsa þess í stað um að næra mig og minn líkama... enda er ég komin í kjörþyngd í fyrsta sinn í 10 ár..... heilsan hefur stórbatnað eftir að hún var sett í hæsta forgang í mínu lífi og margar góðar breytingar hafa átt sér stað. Reyndar hefur vinnan og skólinn aðeins fengið að gjalda fyrir þessa frelsun mína... en líklega lagði ég örlítið of mikla áherslu á þessa þætti áður, svo það er allt í fína lagi.
Bestu kveðjur og takk fyrir mig
Arnheiður Árnadóttir..... sæl og glöð í rope yoga
Kristinn Þórðarson
Kvikmyndagerðamaður
Það eru ekki nema örfáir einstaklingar sem við kynnumst í lífinu -- einstaklingar sem hafa svo djúpstæð áhrif á okkur og breyta viðhorfum okkar svo mikið til betri vegar, að aldrei verður aftur snúið. Guðni er einn þessara einstaklinga sem ég hef átt því láni að fagna að kynnast í lífinu, og hef ég notið góðs af Rope Yoga hug- og heilsuræktarkerfi hans.
Persónulega hef ég aldrei kynnst neinu í líkingu við þetta heilsuræktarkerfi, aðallega vegna þess að með því sameinar Guðni austurlenska heimspeki við mjög áhrifamikla og nærgætna líkamsþjálfun sem fólk á öllum aldri getur stundað. Hann ögrar okkur svo að við náum árangri á uppbyggjandi hátt og slær stanslaust fram nýjum hugmyndum sem tengjast líkamlegu, andlegu og tilfinningalegu lífi okkar. Á þann hátt hjálpar hann okkur að losna undan gömlum og úr sér gengnum viðhorfum, því eftir ástundun í Rope Yoga þá hætta þau að skipta okkur máli eða hafa merkingu.
Sjálfur var ég eins og margur Íslendingurinn, talaði stanslaust um að æfa og að koma mér í form, en minna varð úr verki. Um leið og ég kynntist Rope Yoga æfingarkerfinu þá breyttist allt mitt líf. Það varð umbylting, sem skilaði sér í því að ég komst aftur í kjörþyngd mína og styrkist á líkama og sál. Í fyrsta sinn fór ég að njóta lífsins fyrir alvöru.
Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Ég finn að ég að ég vinn betur og betur úr hverri æfingu og læri meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.
Þorvaldur Þorsteinsson
Myndlistamaður og rithöfundur
Samstarf mitt við Guðna Gunnarsson síðastliðið árí Kaliforniu hefur verið það gjöfulasta og áhrifaríkasta sem ég hef nokkru sinni upplifað. Þó áttum við lítið sameiginlegt nema afmælisdaginn okkar þegar við hittumst.
Ástæðan er einföld: Guðni hefur ekki aðeins mótað einstakt líkams- og hugræktarkerfi sem gerir þér kleift að uppgötva sjálfan þig sem lífræna heild í sátt við sjálfan þig og umhverfi þitt, heldur lifir hann það sjálfur á hverjum degi. Hann er þannig fullkominn vitnisburður þess kærleika, þakklætis og gjafmildi sem hann byggir Rope Yoga lífsspekina á.
Ég óska sem flestum þess að þeir láti eftir sér að kynnast Rope Yoga tækninni og þeirri heilbrigðu lífssýn sem henni fylgir.