Máttur viljans - allt sem þú veitir athygli vex og dafnar
Máttur viljans er bók sem gerir þér kleift að losna undan álögum. Ekki þess háttar álögum sem við lesum um í ævintýrunum, heldur sjálfsálögum – öllu því neikvæða sem við leggjum á okkur sjálfviljug og þar með á allan heiminn.
Þetta er bók um að lifa annaðhvort í sjálfstýringu þar sem skortur og vansæld ráða ríkjum, eða í eigin mætti, í velsæld og fullri kærleiksríkri ábyrgð.Við erum öll ljós og ótakmörkuð orka.
Máttur athyglinnar - sjö vikur til varanlegrar velsældar
Í þessari bók beinir Guðni sjónum sínum að því hversu einfalt er að gera breytingar á lífi sínu og tilvist. Á afar innihaldsríkan en skýran hátt leiðir hann lesandann í gegnum sjö vikna verkefnavinnu sem umbyltir lífi allra sem henni fylgja með krafti í verki.
Bókin er notuð sem verkefnabók á námskeiðum Guðna, en hana getur þó hver sem er lesið og notað eftir eigin þörfum.
Kvöldnámskeið byggt á Mætti viljans og Mætti athyglinnar
Þetta er gríðarlega öflugt námskeið hjá Guðna sem umbreytir öllum hliðum lífs okkar. Mataræði, hreyfing og lífsráðgjöf, allt í einum pakka. Námskeiðið fer fram í formi fyrirlestra og umræðu í hópnum og einnig fylgja með 12 tímar á Rope Yoga grunnnámskeiði eða 12 tíma kort í opna tíma meðan á námskeiðinu stendur.
Þetta er kjörið tækifæri til að hreinsa til í lífi þínu á nýju ári svo þú getir mætt því með endurnýjaðri orku og gleði! Bókin og öll gögn fylgja námskeiðinu.