Rope Yoga setrið í samvinnu við kennsla.is býður nú þessi vinsælu námskeið Þorvaldar Þorsteinssonar (Skilaboðaskjóðan, Blíðfinnur, And Björk, of course..., Lífið-notkunarreglur)
Staður: Myndlistaskólinn í Reykjavík, Hringbraut 121, 2. hæð
(yfir Nóatúnsversluninni í gamla JL húsinu)
Verð: 50.000 kr. Athugið að aðeins 12 þátttakendur eru á þessu námskeiði.
Lýsing: Á þessu námskeiði miðla ég af reynslu minni á sviði skapandi skrifa og beini sérstaklega athyglinni að mikilvægi sögunnar í daglegi lífi okkar allra. Það er manninum eiginlegt að tjá tilveru sína í sögum af öllu tagi og það er ekki síst þeirra vegna sem líf okkar öðlast merkingu þegar allt kemur til alls. Með aukinni meðvitund um þann sagnaanda sem við höfum yfir að ráða opnast okkur fleiri leiðir til að tjá og túlka á nærandi hátt það líf sem við lifum og byggja upp innihaldsríkari og jákvæðari samskipti við aðra.
Á námskeiðinu kynni ég til sögunnar einföld en notadrjúg verkfæri fyrir þátttakendur að nýta til eigin skráningar og sköpunar, þar sem tilgangurinn er fremur að skerpa eigin meðvitund og upplifanir fremur en skapa stórvirki á bókmenntamarkaði – þó slíkt sé vissulega velkomið í leiðinni.
Form; Stuttir fyrirlestrar, fjölbreytt verkefni og samræður ásamt einfaldri heimavinnu.
Nokkrar umsagnir:
"Námskeiðið opnaði óendanlegann ævintýraheim þar sem hugmyndir og
hugleiðingar mínar fá að sveima um í skemmtilegum hlutverkum í stað þess
að vera fyrir mér í raunveruleikanum ... =) ómetanlegt námskeið. Takk
fyrir mig ..."
Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir
,,Um leið og námskeiðið var skemmtilegt tækifæri til að vera samferða fólki með svipuð áhugamál og maður sjálfur, þá var leiðsögnin sem Þorvaldur veitti okkur einhvern veginn svo uppörvandi og vekjandi að þegar námskeiðinu lauk þá stóð a.m.k. ég eftir með aukið sjálfstraust, nýjar hugmyndir og kjark til að hefjast handa.
Það var eiginlega ekki lengur spurning um hvort heldur hvenær.”
Margrét Eggertsdóttir
,,Námskeiðið kom skemmtilega á óvart. Sé einfalda hluti í nýju ljósi sem gefur mjög góð tækifæri til listsköpunar. Persónulegt, skapandi og lifandi námskeið.”
Elín Lára
,,Með einstöku örlæti á reynslu sína, lífssýn og þekkingu hjálpaði Þorvaldur mér að brjóta niður ímyndaðar hindranir í heimi skapandi skrifa. Afslappað andrúmsloft, hollustu krumskjams og te spillti heldur ekkert fyrir í góðum félagskap. Ég mæli með námskeiðinu fyrir fólk sem hefur áhuga á lífinu og tilverunni og langar að virkja sköpunarkraftinn til að gera gott líf skemmtilegra.,,
Hrund Gunnsteinsdóttir