Rope Yoga hefur hjálpað mér að ná sveigjanleika í líkamanum
Guðni hefur opnað augu mín gagnvart því hversu mikilvægt það er að vera ánægður með sjálfan sig eins og maður er. Rope Yoga er æfingakerfi sem að er sérhannað til þess að ná árangri. Námskeiðin samanstanda af þáttum úr líkamsrækt, hugleiðslu og matarræði.
Tilhlökkun og gleði í tíma
Rope Yoga er líkams-og hugræktarkerfi sem ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa kynnst. Í fyrsta sinn fer ég með tilhlökkun og gleði í tíma, sem er nýtt í mínu "líkamsræktarlífi".
Mér var áður kennt að "no pain: no gain" væri hið eina rétta svo árangur næðist, að berja á líkamanum, refsa honum fyrir að vera aldrei í nógu góðu standi.
Yndislegt að finna orkuna aukast
Á námskeiðinu Máttur athyglinnar hjá Guðna kynntist ég skortdýrinu mínu og fékk lausn frá því. Ég lærði að tala við það og uppgötvaði að það er ég sem stjórna eigin lífi en ekki skortdýrið eða annað fólk. Það er dásamleg tilfinning að upplifa að enginn annar hefur áhrif á líf mitt nema ég leyfi það.
Kvaddi gamlar venjur
Ég fór á orku og aðhaldsnámskeið Guðna til að skilja næringu betur. Ég lauk námskeiðinu með miklu meira í farteskinu.Afdráttarlaus nálgun Guðna á okkar eigin vilja opnar fyrir hugarfarsbreytingar sem ná inn á öll svið lífs okkar. Námskeiðið varð til þess að ég kvaddi gamlar venjur sem var löngu tímabært að losa sig við og lifi í kjölfarið heilbrigðara lífi.